Ásta hefur áhyggjur af því að næstu mánuðir verði afar erfiðir því nú streyma fórnarlömb kreppunnar inn til hennar.
Áður voru það einstæðar mæður en nú eru það hjón og barnafjölskyldur sem mest leita til Ráðgjafarstofu heimilanna. Starfsfólk stofunnar horfir upp á mikla örvæntingu skjólstæðinganna þar sem fórnarlömb bankahrunsins streyma inn þessa dagana.
Árið 2009 var algjört metár í aðsókn í fjórtán ára sögu Ráðgjafarstofu heimilanna þegar yfir 2000 heimili og einstaklingar leituðu aðstoðar hjá stofunni. Það er þrefalt fleiri mál en áður var eða jafnmörg mál og stofan sinnti á þremur árum samanlagt fyrir kreppu. Fram að bankahruninu voru sex fastir starfsmenn þar en nú eru þeir ríflega þrjátíu talsins. Starfsmönnum hefur því fjölgað umtalsvert. Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður vonast eftir því að ná að fjölga enn meir þar sem hún býr sig undir frekari holskeflu í febrúar.
Býst við holskeflu
Íslensk stjórnvöld höfðu frestað nauðungarsölum húsnæða fram til fyrsta mars næstkomandi en þá fara fleiri hundruð íbúðarhúsnæði á nauðungaruppboð hjá sýslumannsembættum víða um land. Flestar eignanna eru á höfuðborgarsvæðinu og búast má við holskeflu uppboða á næstu vikum.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“