ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Afturreka Vítisengill var grunaður um stórfellt fíkniefnasmygl

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:35 › 9. febrúar 2010
Leif Ivar var handtekinn við komuna til landsins í gær.

Leif Ivar var handtekinn við komuna til landsins í gær.

„Íslensk stjórnvöld þurfa ekki að óttast okkur,“ sagði Leif Ivar Kristiansen, foringi Vítisengla í Noregi, í samtali við DV sumarið 2008. Leif Ivar var handtekinn við komuna til landsins í gær en hann var hingað kominn til að reka mál á hendur íslenskum yfirvöldum sem hann og félagar hans í samtökunum eru að undirbúa vegna meintrar ólögmætrar handtöku.

„Mér þykir reyndar leitt að þeir skuli vera hræddir við okkur, við erum kurteisir menn og viljum bara ferðast um á mótorhjólunum okkar,“ sagði Leif í viðtalinu en hann er stofnandi Hells Angels í Noregi og forsprakki samtakanna í því landi. Leif gekkst þó ekki við því að vera foringi samtakanna í viðtalinu en hann neitaði því ekki heldur.

„Ef þeir vilja stríð getum við mætt þeim af fullri hörku,“ sagði Leif um hörku stjórnvalda í garð samtakanna hér á landi en benti jafnframt á að það sé þó ekki vilji norsku Vítisenglanna. Leif hefur nokkrum sinnum komist í kast við lögin í Noregi og var meðal annars grunaður um stórfellt fíkniefnasmygl. Hann var þó sýknaður í Hæstarétti Noregs.

„Þeir hafa dregið mig fimm sinnum fyrir dóm og alltaf hef ég gengið út sem frjáls maður,“ sagði Leif um erfitt líf Vítisengilsins. Ein af alvarlegri ákærunum sem hann fékk var vegna smygls á þrjú hundruð og fimmtíu kílóum af hassi frá Danmörku til Noregs, sem fyrr segir.

Þá var efnunum smyglað með húsbíl og eldri hjón óku honum. Landamæraverðir náðu efnunum og voru níu einstaklingar ákærðir í kjölfarið. Sjálfur þurfti Leif að dúsa í gæsluvarðhaldi í þrettán mánuði þar til hann var dæmdur í níu ára fangelsi. Síðan var hann sýknaður af hæstarétti Noregs.

Hinir átta fengu samtals fimmtíu og sjö ára fangelsisdóma vegna glæpsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.