ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Þekkir Gunnlaug en er ekki vinur hans

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
21:00 › 8. febrúar 2010
Siguður Kári Kristjánsson: Er ekki vinur Gunnlaugs Erlendssonar en þekkir hann.

Siguður Kári Kristjánsson: Er ekki vinur Gunnlaugs Erlendssonar en þekkir hann.

Sigurður Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, lýsir því yfir á heimasíðu sinni, að hann sé ekki vinur Gunnlaugs Erlendssonar og hafi ekki séð þann mann í ungliðastarfi Sjálfstæðisflokksins. Sigurður kveðst þó þekkja Gunnlaug en neitar að svara spurningum um það hvort hann hafi verið í sambandi við hann að undanförnu.

Gunnlaugur kemur fyrir sem undirverktaki Mishcon de Reya lögmannsstofunnar, en hann er lögfræðingur og búsettur í Bretlandi.

Eins og DV greindi frá í dag eru honum ætlaðar 10 milljónir króna af 25 milljóna króna reikningi sem Alþingi er gert að greiða fyrir þjónustu Mishcon de Reya við Alþingi og fjárlaganefnd.
Í frétt DV er Gunnlaugur sagður vinur Sigurðar Kára og flokksbróðir.
Sigurður Kári hafði samband við DV vegna málsins í dag og kannaðist ekki við að vera vinur Gunnlaugs. Beðist er velvirðingar á að hafa haldið slíku fram.

Aðspurður kvaðst Sigurður Kári aftur á móti þekkja Gunnlaug enda væru þeir báðir lögfræðingar. Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar blaðamanns svaraði Sigurður Kári engu um það hvort hann hefði verið í sambandi við Gunnlaug Erlendsson nýverið eða á undanförnum mánuðum, en Gunnlaugur kemur fyrir sem verktaki á vegum Mishcon de Reya, sem fengin var til sérfræðistarfa fyrir Alþingi að tilhlutan stjórnarandstöðunnar.

Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingis sagði í viðtali við RÚV í dag að reikningurinn frá Mishcon de Reya væri um það bil tífalt hærri en Alþingi taldi sér fært að borga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.