Gosdrykkjaþambarar eiga í mun meiri hættu á að fá briskrabbamein heldur en þeir sem eru hófsamari í þeirri drykkju. Vísindamenn sem rannsökuðu gosdrykkjaneyslu 60.000 íbúa í Singapúr yfir fjórtán ára aldri komust þeir að því að þeir sem drekka meira en tvær dósir af gosdrykkjum á dag eru 87 prósent líklegri til að fá briskrabbamein heldur en þeir sem neyta ekki slíkra drykkja.
Segja vísindamenn að óhóflegt sykurmagn í slíkum gosdrykkjum leiði til óhóflegrar insúlínframleiðslu líkamans sem getur valdið krabbameini. Gagnrýni á rannsóknina hefur þó komið fram í HealthDay. Þar segir að aðrar rannsóknir hafa ekki tengt gosdrykkjaneyslu við briskrabbamein. Er þar talað um að gosdrykkjaneytendur séu líklegri til að reykja sígarettur og það valdi þeim háu líkum á krabbameini sem talið er að neytendur gosdrykkja eigi yfir höfði sér.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu