Nemendur FB mótmæla með hópskrópi

Hópskróp í FB. Nemendurnir mæta ekki í tíma til að mótmæla ákvörðun skólameistara.

Hópskróp í FB. Nemendurnir mæta ekki í tíma til að mótmæla ákvörðun skólameistara. Mynd Rakel Ósk Sigurðardóttir.

Mánudagur 8. febrúar 2010 kl 13:30

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Hundruð nemenda í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti sitja nú á göngum skólans og neita að mæta í kennslustundir. Nemendurnir mótmæla ákvörðun Guðrúnar Hrefnu Guðmundsdóttur skólameistara um að blása af árshátíð nemendafélagsins sem halda átti á Selfossi. Hefur Gettu betur-lið skólans hótað að draga sig úr keppni í mótmælaskyni.

Í nokkur ár hefur árshátíð NFB, nemendafélags FB, verið haldin úti á landi. Árshátíðin átti að fara fram á Hótel Selfossi þann 4. mars. Átti hluti nemenda kost á því að gista á hótelinu yfir nótt, en aðrir árshátíðargestir ætluðu í rútum heim um nóttina.

Skólameistarinn segir í bréfi til nemenda að skólayfirvöld geti ekki ábyrgst skemmtanahald fjarri heimahögum þar sem foreldrar geti ekki sinnt eftirlitsskyldu. Stór hluti nemendanna sé undir 18 ára aldri. Þá segir skólameistari að þar sem ferðin sé kostnaðarsöm sé hugsanlega verið að ýta undir mismunun nemenda með tilliti til fjárhagsstöðu. Einnig sé það að keyra yfir Hellisheiði að næturlagi á miðjum vetri með stóran nemendahóp ákveðin hætta.

Erla María J. Tölgyes er formaður nemendaráðs FB. Hún segir að hefð hafi skapast fyrir að halda árshátíð skólans úti á landi. „Þetta er hefð sem við erum ekki tilbúin að gefa upp. Við erum að fjölmenna fyrir utan skrifstofu skólameistara með gítara og læti og erum að skrópa í tíma til að mótmæla þessu.“

Erla María telur rök skólameistarans óljós og segir að ballið á Selfossi hafi átt að vera með sama hætti og samskonar skólaböll í Reykjavík. „Það gilda alveg sömu reglur um áfengisnotkun á Selfossi og í bænum, öll böll eru böll, ölvun ógildir miðann.“

350 manns skráðu sig í mótmælin á Facebook. Þá hafa nær 200 nemendur skráð sig í hóp á Facebook sem kallast „Við viljum að Skólameistari FB gefi NFB frjálsari hendi.“ Þar segir í lýsingu:
„Við þurfum að stoppa hana áður en við endum að fá bara fara eina keilu ferð á önn... þar sem við megum panta pítsu ef við verðum rosa þæg! Við erum ekki í grunnskóla, við erum flest orðin 18 ára, sumir komnir langt yfir tvítugt!“

Lið FB komst í fyrsta skipti í 12 ár í 8-liða úrslitakeppni Gettu betur sem fer fram í sjónvarpinu. Mun FB mæta liði FSu í sjónvarpinu 27. febrúar. Liðið hefur skrifað skólameistara bréf þar sem ákvörðun hennar er gagnrýnd. Segjast liðsmenn nú íhuga að draga sig úr keppni í Gettu betur, breyti stjórnendur skólans ekki ákvörðun sinni.

Ekki náðist í skólameistara FB vegna málsins.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 23:33

Sáu fljúgandi furðuhlut á sveimi yfir heimavelli Chelsea

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 22:31

Vildi hefna sín á skattinum

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 21:51

Þungt yfir mönnum vegna Icesave-málsins

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 21:33

Ragnar kann betur við að leikstýra

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 21:12

Dyravörður fær engar bætur

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 20:10

Íslenskir ferðalangar vilja nektarnýlendu

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 19:35

Stal tólf hundruð skópörum

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 19:04

Stakk kærustuna til bana vegna myndar á Facebook

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 18:28

Leyniskjal um Icesave: Vildu að Norðmenn öxluðu ábyrgð

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 18:05

Nýtt bankaráð Landsbankans: Formaðurinn fær 400 þúsund á mánuði

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 17:38

Kveikti í húsinu sínu og flaug á byggingu

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 17:15

Nýtt myndband varpar ljósi á þátt Davíðs í hruninu

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 16:50

Hæstiréttur þyngir dóm yfir blaðamanni DV

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 15:58

Stundum bjargar það lífi manns að brenna peninga

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 15:16

Joly eins og hver annar pistlahöfundur

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 15:05

Kannabisræktendur dæmdir

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 13:53

Stjórnvöld þögul um frétt Financial Times

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 13:23

Jóhanna fundaði með varaforseta Evrópuþingsins

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 13:19

Áhyggjur af boðuðu verkfalli

Fimmtudagur 18. febrúar 2010 kl 12:33

Símanúmer selt á 850.000 sem Fjölskylduhjálp fær