Tryggvi fékk ríflega sextán milljónir meðan hann var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Mynd Heiða Helgadóttir
„Þetta var bónus fyrir fyrri helming ársins 2008,“ segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi forstjóri Askar Capital. Pressan.is greindi frá því í morgun að Tryggvi Þór hefði fengið ríflega sextán milljónir króna frá Askar meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sumarið 2008.
Tryggvi var forstjóri Askar frá stofnun þess árið 2007 en tilkynnti sumarið 2008 að hann færi í hálfs árs leyfi frá störfum sínum hjá bankanum eftir að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, óskaði eftir því að hann kæmi til starfa í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi.
Þegar það varð ljóst sagði Tryggvi í samtali við fjölmiðla að hann yrði ekki á launum hjá Askar meðan hann sinnti starfi sínu sem efnahagsráðgjafi. Því væri engin hætta á hagsmunaárekstrum. Þegar Tryggvi tók við sem efnahagsráðgjafi var rekstur Askar Capital erfiður og nam heildartap af starfseminni 12,4 milljörðum króna árið 2008.
Aðspurður hvort það hafi verið eðlilegt að þiggja bónusa þegar tap var af starfseminni segir hann: „Reksturinn fyrri part ársins 2008 var ekki erfiður. Ekki þannig. Tapið kemur ekkert í ljós fyrr en í hruninu.“
Greiðslurnar til Tryggva námu sem fyrr segir ríflega sextán milljónum króna og voru þær greiddar til hans mánaðarlega eftir að hann lét af störfum hjá Askar. Að auki var Tryggvi á bifreið sem Askar greiddi fyrir og segir Tryggvi að það hafi allt verið hluti af þessum bónus sem gerður var upp við hann áður en hann tók við sem efnahagsráðgjafi.
Tryggvi segir að aldrei hafi verið nein hætta á hagsmunaárekstrum, þó hann væri í senn efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar og á bónusum frá fjármálafyrirtæki. „Ekki þegar þetta er þannig að það er algjörlega skilið á milli,“ segir hann og bætir við að bónusinn hafi verið vegna fyrri parts ársins 2008, ekki seinni partsins. „Ég veit ekki alveg hvaða hagsmunaárekstrar hefðu getað orðið.“
Tryggvi Þór var staddur í New York þegar blaðamaður náði tali af honum en í dag hófst kjördæmavika á Alþingi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara