ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Arnar og Bjarki sagðir vilja spilavíti á Hótel Nordica

08:08 › 8. febrúar 2010
Hótel Nordica. Hugmyndin hefur verið send hagsmunaaðilum til umsagnar.

Hótel Nordica. Hugmyndin hefur verið send hagsmunaaðilum til umsagnar. Mynd DV

Icelandair hefur lagt inn beiðni til dómsmálaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytis um að fjárhættuspil verði lögleitt hér á landi. Hafa forsvarsmenn fyrirtækisins fundað með stjórnvöldum vegna málsins sem hefur verið sent landlækni, lögreglu, ferðaþjónustunni og SÁÁ til umsagnar.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en þar segir að hugmyndin sé upphaflega frá tvíburabræðrunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum. Er hugmyndin sögð hafa verið í gerjun hjá þeim í um fimm ár, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins og eru þeir enn sagðir í samstarfi við Icelandair um málið.

Hugmyndin var kynnt iðnaðarráðherra og dómsmálaráðherra á fundum fyrir jól og í kjölfarið send hagsmunaaðilum til umsagnar. Að því er fram kemur í Fréttablaðinu er tillagan unnin að danskri fyrirmynd, þar sem rekstur spilavíta er leyfisskyldur og hagnaður skattlagður mjög hátt. Er hugmyndin að ríflega 60 prósent hans myndu renna til ríkissins.

Haft eftir Björgólfi Jóhannessyni, forstjóra Icelandair, að það gæti orðið styrkur fyrir ferðaþjónustuna að opna löglegt spilavíti hérlendis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.