Arnar Gunnlaugsson sagði stöðu Íslands vera til mikillar skammar í viðtali í Kastljósinu í kvöld. Arnar var þar að ræða um mögulegt spilavíti sem Icelandair vill reka í Hótel Nordica í Reykjavík. Arnar sagði það skammarlegt fyrir Ísland að ólöglegir spilaklúbbar væru reknir hér á landi og að netspilun sé stunduð af miklum krafti.
Arnar sagði spilavítið geta opnað möguleika fyrir ríkisvaldið til að hafa betra eftirlit með fjárhættuspili á Íslandi, auk þess mun það skapa störf og skatttekjur fyrir Íslendinga. Arnar var þó spurður hvort að megintilangur spilavítisins væri ekki til þess að græða peninga og svaraði Arnar því um hæl að sjálfsögðu væri það eðli viðskipta líkt og að vinna til verðlauna í knattspyrnu.
Arnar lagði ríka áherslu á að hann væri sammála Júlíusi Þór Júlíussyni, formanni Samtaka áhugafólks um spilafíkn, um að spilafíkn væri vaxandi vandamál á Íslandi en á því væri hægt að taka með auknu eftirliti sem yrði til komið með rekstri spilavítis.
Júlíus var þó ekki sammála Arnari um ágæti spilavítisins. Hann sagði það ekki ábætandi á ástandið að fara að reka spilavítið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision