Gordon Brown beygði af í viðtali við Morgan

Gordon Brown. Hefur gengið í gegnum súrt og sætt í einkalífinu undanfarin ár.

Gordon Brown. Hefur gengið í gegnum súrt og sætt í einkalífinu undanfarin ár.

Sunnudagur 7. febrúar 2010 kl 12:30

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, beygði af í viðtali við Piers Morgan í spjallþætti hans sem tekinn var upp um helgina. Það var tilfinningaþrungin stund í sjónvarpssal þegar ráðherrann ræddi andlát dóttur sinnar Jennifer sem lést árið 2002, aðeins tíu daga gömul.

Viðtalið var tekið upp fyrir þátt Morgan, Life Stories, fyrir framan áhorfendur en þátturinn verður sýndur á ITV-sjónvarpstöðinni um næstu helgi. Daily Mail hefur fengið að vita hvað gekk á í þættinum og greinir frá því á vef sínum í dag.

Sarah, eiginkona Gordons Brown, var einnig í sjónvarpssal og grétu þau saman þegar talið barst að erfiðleikunum í einkalífi þeirra.

Brown sagði frá þeirri stundu þegar honum var tjáð að nýfædd dóttir hans myndi ekki lifa af. Hún lést af völdum heilablæðingar aðeins tíu daga gömul árið 2002.

Brown ræddi einnig um son sinn Fraser, sem þjáist af sjaldgæfum erfðasjúkdóm, og hvernig ekki hafi verið útséð með hvort hann myndi lifa af. Ráðherrann heldur enn í vonina um að lækning finnist við slímseigjusjúkdómnum sem sonur hans fæddist með. Lífslíkur Frasers eru ekki taldar miklar.

„Hann lýsti því hvernig hann hélt í agnarsmáa hönd hennar þar til yfir lauk,“ hefur Daily Mail eftir einum áhorfanda í sjónvarpssal þegar Brown ræddi um andlát dóttur sinnar. Jennifer, dóttir þeirra hjóna, lést í örmum foreldra sinna.

Brown hefur í gegnum tíðina þótt heldur fálátur en hann opnar sig og sýnir af sér nýjar hliðar í viðtalinu við Piers Morgan.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 23:25

Pýramídarnir í Giza og Pizza Hut

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 22:21

Tiger Woods ætlar loksins að rjúfa þögnina

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 21:52

Tíu milljónir í umferðarsektir

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 21:35

Steingrímur: „Tíminn er mjög skammur“

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 20:55

Myndband: Pelíkani ræðst á veðurfréttamann

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 20:38

Ljósi varpað á hrottalega tilraunastarfsemi Japana

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 20:26

Stofnar einkasjúkrahús fyrir útlendinga

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 20:09

Fáðu bestu vextina

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 19:05

Sektuð fyrir að missa banahýði

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 18:01

Rannsóknarnefndin gefur lengri frest

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 18:00

Ætlar að láta Eirík og Guðmund leysa deiluna í beinni

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 16:40

Þingmaður stöðvaði slagsmál á Útvarpi Sögu

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 16:36

Vefútgáfur dagblaða grafa ekki undan þeim

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 15:51

Fjársvik, kannabis og innbrot

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 15:29

Vill hert tök á fyrri eigendum stórfyrirtækja

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 15:27

Stjörnukokkur rekinn fyrir að mæla með kattakássu

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 15:15

Gagnrýnir áherslur RÚV í niðurskurði

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 15:04

Klámskiltisperrinn í Moskvu handtekinn

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 14:37

Fjörtíu þúsund manns fá von um minni skuldabyrði

Miðvikudagur 17. febrúar 2010 kl 14:30

Pyntaði dóttur sína vegna stafrófsins