ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 3m/s E

Einar Bárðar býðst til að kaupa Rás 2

15:32 › 7. febrúar 2010
Einar Bárðarson vill losa RÚV við Rás 2. Sér í því hagræðingarmöguleika og sóknarfæri fyrir sína stöð.

Einar Bárðarson vill losa RÚV við Rás 2. Sér í því hagræðingarmöguleika og sóknarfæri fyrir sína stöð.

Einar Bárðarson, athafnamaður og útvarpsstjóri Kanans, hyggst á morgun senda Páli Magnússyni útvarpsstjóra RÚV bréf þar sem hann óskar eftir að fá að kaupa Rás 2. Einar segir í samtali við DV.is að hann sjái fyrir sér slá megi tvær flugur í einu höggi með þessu. Kaninn fengi með þessu alvöru dreifikerfi og létt yrði á rekstri RÚV með að annað hvort pakka saman Rás 2 eða sameina stöðina Rás 1.

„Ég ætlaði að senda þetta bréf í síðustu viku en komst ekki í það,“ segir Einar aðspurður um áform sín. Hann segir að tilboð hans hljóði upp á að hann kaupi Rás 2, eða að RÚV myndi leigja Kananum græjurnar og aðgang að dreifikerfinu. „Svona rétt á meðan þeir rétta reksturinn af,“ bætir Einar við leiguhugmyndina.

Aðspurður hvert verðmat hans sé á Rás 2 svarar Einar að bragði: „Hvers virði er það fyrir þjóðina að halda uppi taprekstrinum á RÚV? Auðveldast væri líklega að rétta manni þetta. En nei, ég býst nú við að þurfa að borga eitthvað fyrir þetta,“ segir Einar af fullri alvöru.

Einar segir Rás 2 búa við minnkandi hlustun og því gæti tilboð hans bara verið gott mál fyrir alla. „Fólkið í landinu fengi nýja týpu af útvarpi, og þeir gætu sameinað þessar tvær ríkisstöðvar í eina og hætt að djöflast á auglýsingamarkaði með tvær stöðvar „full time.“ Þó fullt af góðu fólki vinni á Rás 2, það má ekki misskilja mig sem svo. En þetta er bara ein leið sem má skoða í breyttu landslagi,“ segir Einar.

Aðspurður segir hann viss um að fá svör frá Páli Magnússyni. „Ég hef alltaf fengið svör frá Páli. Það er alltaf gaman að tala við hann. Veit nú samt ekki hvernig hann tekur í þetta en ég er viss um að fá svör.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.