ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Árni Johnsen: Hélt þetta væri mitt síðasta

21:05 › 7. febrúar 2010
Árni segir þúsund engla vaka yfir sér.

Árni segir þúsund engla vaka yfir sér.

„Ég fór fimm veltur og það var guðslán að ég slapp ómeiddur en það eru þúsund englar sem vaka yfir mér,“ segir þingmaðurinn Árni Johnsen. Hann lenti á dögunum í bílveltu á Toyota jeppabifreið sinni, nærri Litlu Kaffistofunni, og í gegnum huga hans flugu hugsanir að þetta gæti verið hans síðasta.

„Vissulega var ég lurkum laminn en mér bregður eiginlega aldrei. Í hverri veltu reyndi ég að hnipra mig niður og var eiginlega hissa á því sem var að eiga sér stað. Þetta var þannig að það fór í gegnum hugann hvort þetta væri mitt síðasta,“ segir Árni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.