ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Je Ne Sais Quoi fer til Noregs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:41 › 6. febrúar 2010
Hera Björk fer til Noregs fyrir Íslands hönd í Eurovision.

Hera Björk fer til Noregs fyrir Íslands hönd í Eurovision. Mynd: Skjáskot af Rúv.is

Lagið Je Ne Sais Quoi, eftir Örlyg Smára og Heru Björk Þórhallsdóttur, verður framlag Íslendinga í Eurovison-söngvakeppninni sem haldin verður í Noregi síðar á þessu ári. Úrslitaþátturinn fór fram á RÚV í kvöld þar sem þjóðin kaus sitt lag. Alls tóku fimmtán lög þátt í undankeppninni að þessu sinni en sex lög börðust um hylli þjóðarinnar.

Tvö efstu lögin í kosningunni voru lögin Je Ne Sais Quoi eftir Örlyg Smára og Heru Björk og One More Day í flutningi Jógvan Hansen eftir Óskar Pál Sveinsson og Bubba Morthens. En Hera og Örlygur Smári höfðu betur.

„Mér líður ótrúlega vel núna. Það er rosa gaman að vinna þetta,“ sagði Örlygur Smári strax og úrslitin voru kunngjörð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.