ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Bjarni spurði Guðmund um Vafning

07:20 › 5. febrúar 2010

„Já, já, við höfum svo sem alveg átt samskipti. Er það eitthvað óeðlilegt?“ spyr Guðmundur Ólason, fyrrverandi forstjóri Milestone, þegar hann er spurður um það hvort Bjarni Benediktsson hafi átt í samskiptum við fyrrverandi eigendur og stjórnendur Milestone eftir að DV byrjaði að fjalla um Vafningsmálið í desember.

Guðmundur segir að Bjarni hafi haft samband við sig til að ræða um Vafningsmálið.

Guðmundur segir jafnframt að Bjarni og eigendur og stjórnendur Milestone hafi ekki átt fund út af Vafningsmálinu upp á síðkastið. Bjarni var spurður að þessu atriði í viðtali við Helga Seljan í Kastljósi á miðvikudaginn og neitaði Bjarni því að hafa fundað með þeim Milestone-mönnum.

Orð Guðmundar staðfesta að samskipti hafi átt sér stað á milli Bjarna og Milestone þó að eiginlegur fundur hafi ekki verið haldinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?