ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Segir tilraunir Morgunblaðsins hafa mistekist

19:19 › 4. febrúar 2010
Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.

Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Mynd DV

„Tilraunir Morgunblaðsins til að stoppa þennan samdrátt í lestri, með nýjum ritstjóraráðningum og breyttum áherslum í blaðinu, virðast ekki hafa tekist eins og menn voru að vona,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur og lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.

Samkvæmt nýrri könnun Capacent mælist lestur á Morgunblaðinu nú 32,3 prósent en á sama tíma í fyrra mældist hann 42,7 prósent.

Fréttablaðið hefur einnig misst lesendur, þó ekki í jafn miklum mæli og Morgunblaðið. Mælist meðallestur blaðsins nú 62,7 prósent en á sama tíma í fyrra var hann 63,7 prósent. Nemur fækkunin einu prósentustigi hjá Fréttablaðinu en hjá Morgunblaðinu tæpum tíu prósentustigum.

Tilkoma nýrra ritstjóra, þeirra Davíðs Oddssonar og Haraldar Johannessen, virðist engu hafa breytt um fall Moggans því síðan þeir tóku við hefur lesturinn fallið um fimm prósent.

„Þeir hafa verið að missa lesendur frá sér í langan tíma og það virðist ekkert lát vera á því,“ segir Birgir og bætir við að það sé áhyggjuefni fyrir dagblaðalestur almennt. „Það er í sjálfu sér áhyggjuefni fyrir lestur dagblaða almennt og Morgunblaðið einkum og sér í lagi,“ segir hann.

Þegar leitað var viðbragða Davíðs ritstjóra og Óskars Magnússonar, útgefanda Morgunblaðsins, í dag fengust þær upplýsingar að hvorugur þeirra væri við.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.