ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Aðstoðarmaður Jóhönnu henti út „útrásarvíkingi“

22:36 › 3. febrúar 2010
Hér má sjá athugasemd Sveins á Facebook-síðu Hrannars.

Hér má sjá athugasemd Sveins á Facebook-síðu Hrannars.

  • Grínisti. Sveinn tekur sjálfan sig ekki of alvarlega enda titlaður útrásarvíkingur í símaskránni.

    Grínisti. Sveinn tekur sjálfan sig ekki of alvarlega enda titlaður útrásarvíkingur í símaskránni.

  • Hrannar tók ekki vel í grínið og eyddi Sveini sem vin á Facebook.

    Hrannar tók ekki vel í grínið og eyddi Sveini sem vin á Facebook.

„Hann var eitthvað viðkvæmur fyrir þessu og eyddi mér sem vin á Facebook,“ segir Sveinn Jóhannesson Kjarval. Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, batt enda á stutta vináttu þeirra tveggja á Facebook eftir að Sveinn gerði athugasemd við Facebook-færslu Hrannars í kvöld.

Hrannar hafði sett tengil á Facebook-síðu sína af frétt Pressunnar frá því fyrr í dag, þar sem haft er eftir Árna Þór Sigurðssyni, þingmanni Vinstri grænna, að Jóhanna Sigurðardóttir hafi sagt að erlendur samningamaður kæmi að Icesave-viðræðunum við hlið Svavars Gestssonar, ekki í hans stað.

Sveinn sá sér leik á borði og gerði athugasemd á léttu nótunum við færslu Hrannars á Facebook þar sem hann sagðist hafa haldið að Jóhanna þyrfti bara túlk í útlöndum, ekki á Íslandi og skaut þar með létt á aðstoðarmann forsætisráðherrans. Eitthvað virðist athugasemdin hafa farið fyrir brjóstið á Hrannari sem eyddi Sveini sem vin í kjölfarið.

„Þar með endaði hann mjög farsæla vináttu okkar,“ segir Sveinn. Aðspurður hversu lengi vináttan stóð yfir segir hann: „Við vorum búnir að vera vinir alveg í einn til tvo mánuði. Ég batt miklar vonir við þessa vináttu,“ segir Sveinn sem tekur sjálfan sig ekki of alvarlega, enda titlaður útrásarvíkingur í símaskránni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.