ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Stóra plottið: Bjarni og félagar söfnuðu 45 milljörðum

10:55 › 3. febrúar 2010
„Ég tók engar ákvarðanir fyrir hönd þessa félags,“ sagði Bjarni Benediktsson um félagið Vafning, sem var hlekkur í umfangsmiklum viðskiptum tengdum Engeyingum og Milestone-mönnum. DV hefur nú leyniskjöl undir höndum sem sýna að hann skrifaði fjórum sinnum undir viðskiptin.

„Ég tók engar ákvarðanir fyrir hönd þessa félags,“ sagði Bjarni Benediktsson um félagið Vafning, sem var hlekkur í umfangsmiklum viðskiptum tengdum Engeyingum og Milestone-mönnum. DV hefur nú leyniskjöl undir höndum sem sýna að hann skrifaði fjórum sinnum undir viðskiptin.

  • Ítarlega er fjallað um plan Milestone og Engeyinga í DV í dag.

    Ítarlega er fjallað um plan Milestone og Engeyinga í DV í dag.

Aðstandendur eignarhaldsfélagsins Milestone og hópur Engeyinga, eigendur BNT, móðurfélags N1, söfnuðu 45 milljörðum króna í aðdraganda hrunsins. Aðferðirnar voru flóknar og ógagnsæjar, en niðurstaðan var að 45 milljarðar voru sendir úr landi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áður sagt að hann hafi ekkert komið nálægt ákvörðunum um Vafning. Samkvæmt leyniskjölum sem DV hefur undir höndum var hann í miðju viðskiptanna. Skjölin með undirskrift hans eru birt í DV í dag.

Bjarni gegndi lykilhlutverki í að koma viðskiptunum í gegn. Það gerði hann sem stjórnarmaður í BNT. Hann skrifaði upp á umboð sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hultabréf félagsins í eignarhaldsfélaginu Vafningi 8. febrúar 2008. Það reyndist vera mikilvægur hlekkur í umfangsmiklum viðskiptum sem höfðu þann tilgang að gera Milestone og ættingjum Bjarna kleift að borga Morgan Stanley 45 milljarða. Öðrum kosti hefði Milestone væntanlega farið á hliðina, með mögulegri keðjuverkun fyrir tengd félög.

Bjarni var einn þriggja stjórnarmanna frá eignarhaldsfélaginu BNT sem skrifaði upp á umboðið sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi, sem hélt utan um fasteignaviðskipti með lúxusíbúðir í Makaó suður af Kína. Hinir tveir mennirnir voru stjórnarmennirnir Jón Benediktsson og Gunnlaugur Sigmundsson, sem er þekktur athafnamaður og meðal annars faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag og birt skýringarmynd af flókna viðskiptaneti Milestone og Engeyinga.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.