ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Tiger læsir klónum í PETA

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:26 › 25. febrúar 2010
Auglýsing PETA. Ekki að fara að gerast segir Tiger.

Auglýsing PETA. Ekki að fara að gerast segir Tiger.

Dýraverndunarsamtökin PETA kalla nú ekki allt ömmu sína en þegar Tiger Woods og lögfræðingaher hans bankar upp á þá hlustar þú. Samtökin hafa neyðst til að hætta við auglýsingaherferð sína sem notfærir sér ímynd kylfingsins kvensama.

Í auglýsingunum, sem átti að birta á auglýsingaskiltum, má sjá mynd af Tiger Woods við hlið textans: „Of mikið kynlíf getur verið slæmt – líka fyrir litla tígra. Hjálpaðu til við að halda kettinum (eða hundinum) þínum úr vandræðum og láttu gelda hann.“

Skiljanlega var Tiger ekki skemmt í ljósi nýlegra misgjörða sinna og lét hann lögfræðinga sína koma þeirri skoðun sinni á framfæri við PETA að þessi auglýsing væri dauðadómur yfir þeim.

„Í ljósi þeirra samræðna sem við höfum átt við lögfræðina herra Woods þá höfum við ákveðið að hætta við birtingu auglýsinganna,“ segir í tilkynningu frá PETA vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.