ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Andstaða við að rekstur spilavíta verði leyfður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:46 › 25. febrúar 2010
63,7 prósent eru frekar eða mjög andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi.

63,7 prósent eru frekar eða mjög andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Mynd Photos

63,7 prósent eru frekar eða mjög andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Þetta kemur fram í könnun MMR sem kannaði hversu fylgjandi eða andvígt fólk væri gagnvart því að leyfa rekstur spilavíta hér á landi. 71 prósent karla undir þrítugu eru fylgjandi.

Af þeim sem tóku afstöðu voru 63,7 prósent, sem fyrr segir, frekar eða mjög andvíg hugmyndinni. Skipt eftir einstökum svörum voru 39,5 prósent sem sögðust mjög andvíg, 24,2 prósent sögðust frekar andvíg, 20,6 prósent sögðust frekar fylgjandi og 15,7 prósent sögðust mjög fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á Íslandi.

Töluverður munur reyndist á afstöðu svarenda eftir kyni og aldri. Þannig voru 46 prósent karla sem sögðust hlynnt því að rekstur spilavíta væri leyfður en eingöngu 26 prósent kvenna.

Þá voru 55 prósent svarenda undir þrítugu fylgjandi því að rekstur spilavíta væri leyfður á meðan þetta sama hlutfall var 35 prósent hjá aldurshópnum 30-49 ára og eingöngu 21 prósent meðal 50 ára og eldri.

Sé fjöldi karla undir þrítugu skoðaður sérstaklega kemur í ljós að 71 prósentsvarenda í þessu hópi sögðust fylgjandi því að rekstur spilavíta yrði leyfður á Íslandi



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.