Þriðjungur Norðmanna telur rétt að Íslendingum sé gert að endurgreiða Bretum og Hollendingum að fullu skuldir vegna Icesave innstæðna. Afstaða Norðmanna er mun eindregnari um þetta atriði en reyndist vera í sambærilegri könnun sem gerð var í Svíþjóð.
Þetta eru niðurstöður könnunar sem MMR, Markaðs- og miðlarannsóknir gerði í Noregi. Þegar litið er til alls úrtaksins reyndist fimmtungur Norðmanna vera þeirrar skoðunar að Íslendingum bæri að endurgreiða Icesaveskuldirnar að fullu. Aðeins 9 prósent reyndust vera þessarar skoðunar í Svíþjóð.
Könnunin leiddi einnig í ljós, að 13 prósent Norðmanna telja að Íslendingar eigi að neita að endurgreiða Bretum og Hollendingum en 27 prósent telja að kostnaðurinn eigi að deilast milli landanna þriggja. Um 40 prósent aðspurðra hafði ekki skoðun á málinu.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir