ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

„Þetta er ekki á gráu svæði“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
06:30 › 24. febrúar 2010
Ármann Kr. Ólafsson

Ármann Kr. Ólafsson

„Ég get lofað því að það voru hvergi svona fáar pizzur keyptar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem sigraði í prófkjörinu um síðustu helgi. Viðmælandi sem DV ræddi við segir að Ármann hafi gefið syni sínum og tveim öðrum drengjum sem allir eru 16 ára gamlir pizzur eftir að stuðningsmaður Ármanns lét þá kjósa hann í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

„Drengjunum var boðið að koma á kosningaskrifstofu Ármanns að Bæjarlind 2 í Kópavogi til að þiggja kökur og aðrar veitingar. Þar var kona sem vildi að þeir myndu kjósa. Þeir voru ekki á því. Þá vildi hún endilega skutla þeim í Valhöll. Hún keyrði þeim síðan þangað þar sem enginn þeirra var með bílpróf því þeir eru allir 16 ára gamlir. Þar voru þeir skráðir í Sjálfstæðisflokkinn. Svo var þeim sagt hvernig þeir ættu að raða á listann. Eftir þetta var þeim skutlað upp í Bæjarlind aftur sem Ármann tók á móti þeim og borgaði fyrir þá pizzur á Rizzo,“ segir faðirinn sem finnst þetta forkastanleg vinnubrögð. Hann segir að sonurinn hafi farið með móður sinni á mánudaginn í Valhöll til þess að láta skrá sig úr Sjálfstæðisflokknum.

„Ég keypti fjórtán pizzur í heildina,“ segir Ármann og tekur fram að það starfi fjöldi manns í kringum framboðið hjá sér. Því fólki verði að gefa að borða. Þessar pizzur fóru til ungs manns sem aðstoðaði hann við framboðið. Auk þess vill Ármann taka fram að hann bauð upp á heilmikið vínarbrauð á kosningarskrifstofu sinni. Ásamt því bauð hann upp á 150 bollur, 200 upprúllaðar pönnukökur, appelsínutertu með 200 sneiðum og fleira.

Aðspurður hvort að það sé rangt að hann hafi gefið pizzur í stað atkvæða svarar hann. „Já að sjálfsögðu. Þetta er alltaf túlkunaratriði. Þetta er allt fyrir atkvæði gert,“ segir Ármann. Aðspurður hvort honum þyki þetta vera á gráu svæði svarar hann:  „Þetta er ekki á gráu svæði. Það voru aðrar skrifstofur að bjóða upp á bjór og áfengi. Ég gerði það ekki,“ segir hann. Ármann vill koma því á framfæri að kosningaskrifstofa hans hafi verið opin í þrjár vikur og hann geti sýnt kvittanir fyrir öllum kostnaði vegna prófkjörsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?