Ásmundi Jóhannssyni baráttumanni fyrir réttlátara fiskveiðistjórnunarkerfi var vottuð sérstök virðing í upphafi fundar en hann lést fyrir skemmstu. Myndir: DV - Gunnar Gunnarsson
Fullt var út úr dyrum á fundi á Vitanum í Sandgerði í gærkvöldi þar sem fjallað var um helstu álitamál í íslenskum sjávarútvegi. Að sögn staðarhaldara var um að ræða fjölmennasta fund sem haldinn hefur verið í húsakynnum Vitans. Í upphafi fundarins var Ásmundi Jóhannssyni, baráttumanni úr Sandgerð sem lést á dögunum, vottuð sérstök virðing. Mál hans átti að taka fyrir í héraðsdómi í vikunni en honum voru gefnar að sök ólöglegar veiðar.
Frummælendur á fundinum voru Grétar Mar Jónsson skipstjóri og fyrrverandi þingmaður, Finnbogi Vikar laganemi, Lúðvík E. Kaaber hæstaréttarlögmaður og Jón Gunnar Björgvinsson flugmaður og sjómaður. Allir gagnrýndu þeir kvótakerfið og bentu á nauðsyn tafarlausra breytinga.
Einn fundargesta segir í samtali við DV að ljóst megi vera að mikill hugur sé í mönnum fyrir þá baráttu sem framundan sé. Fundarmenn hafi sammælst um þá kröfu að kvótinn verði innkallaður á mun skemmri tíma en stjórnvöld hyggjast gefa sér.
Fundarmenn kröfðust þess að mannréttindabrot á íslenskum sjómönnum yrðu stöðvuð. Þingmenn mótmæli gjarnan mannréttindabrotum í fjarlægum löndum en þegi þunnu hljóði yfir mannréttindabrotum heimafyrir.
Lúðvík Kaaber rakti hvernig atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar væri nú fótum troðið. Þetta væru réttindi, sem menn um alla Evrópu hefðu lagt líf sitt að veði við að ná fram á 19. öld. Sú barátta hefði meðal annars falið í sér baráttu gegn því að menn gætu einokað heilar atvinnugreinar líkt og gerist í íslenskum sjávarútvegi 200 árum síðar.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir