ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Skoðanakönnun á skjön við viðmót sem Jóhannes finnur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:39 › 23. febrúar 2010

Jóhannes Jónsson, betur þekktur sem Jóhannes í Bónus, segir skoðanakönnunina þar sem lýst er að 80,1 prósent aðspurðra séu frekar eða mjög andvíg að Jóhannes fái að kaupa tíu prósent hlut í Högum sé annað viðmót en hann finni fyrir í verslunum Haga. „Það virðist vera almennur misskilningur að ég eignist 10% hlut í fyrirtækinu, þegar það fer á markað í Kauphöll Íslands. Það rétta er, að mér býðst að kaupa 10% hlut á sama verði og öðrum fjárfestum,“ segir í tilkynningu frá Jóhannesi.

Hann segist þakklátur fyrir þann stuðning sem hann fái frá viðskiptavinum Haga.

Tilkynning Jóhannesar:

„Skoðanakönnun sú, sem lesa má í netmiðlum í dag, þar sem lýst er að 80,1% aðspurðra séu frekar eða mjög andvíg því að ég, Jóhannes Jónsson, starfandi stjórnarformaður Haga, fái að kaupa allt að 10% hlut í Högum af Arion banka, er vægast sagt annað viðmót en ég finn fyrir í verslunum Haga.

Það virðist vera almennur misskilningur að ég eignist 10% hlut í fyrirtækinu, þegar það fer á markað í Kauphöll Íslands. Það rétta er, að mér býðst að kaupa 10% hlut á sama verði og öðrum fjárfestum.

Ég er þakklátur fyrir þann stuðning, sem ég fæ úr öllum áttum frá fjölmörgum viðskiptavinum Haga, fólki sem kemur að máli við mig eða sendir mér línu. Ég mun halda áfram að vinna að hag fólks í landinu með lágu vöruverði, hér eftir sem hingað til.

Virðingarfyllst
Jóhannes Jónsson“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.