ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.7° 8m/s SSE

Nýr kristinn söfnuður sem segir mönnum að slást

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:30 › 2. febrúar 2010
Tekist á í nafni Jesú Krists.

Tekist á í nafni Jesú Krists. Photos.com

Ný tegund kristinnar trúar, sem blandar saman trú og blönduðum badagaaðferðum, nýtur vaxandi fylgis í Bandaríkjunum. Söfnuðir sem aðhyllast þessari stefnu trúa því að Jesú Kristur hafi verið bardagamaður. Segja forsvarsmenn Xtreme Ministries-kirkjunnar, kristna trú hafa alið upp kynslóð lítilla drengja sem ekki kunni að svara fyrir sig.

Gagnrýnendur þessara stefnu óttast að hún missi algjörlega marks af hinum raunverulega boðskap Jesú Krists, sem talaði ávallt um að bjóða hinn vangan. Kjörorð Xtreme Ministries-kirkjunnar er: „Þar sem fætur, hnefar og trú falla saman.“ Ganga sumir söfnuðir, sem aðhyllast þessu kjörorði, svo langt að halda bardagaviðburði þar sem tekið er ærlega á því, en aðrir söfnuðir láta sér nægja að horfa á bardaga í sjónvarpinu.

Á meðan slíkir söfnuðir telja þetta einu leiðina til að ala upp alvöru karlmenn segjast gagnrýnendur ekki vilja trúa á Jesús sem borði rautt kjöt, drekki bjór og berji aðra menn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?