Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Þrettán ára piltur tók bíl foreldra sinna í leyfisleysi á Ísafirði undir hádegi í dag og ók honum á ljósastaur. Höggið við ákeyrsluna var svo mikið að ljósastaurinn féll um koll og lenti á fjórum kyrrstæðum bílum sem skemmdust töluvert.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni var pilturinn einn í bílnum en óhappið átti sér stað á Fjarðargötu. Bíllinn sem pilturinn var á skemmdist mikið en að sögn lögreglu var það lán í óláni að enginn var á ferð í kringum bílana þegar ljósastaurinn féll. Piltinn sakaði ekki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna