ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Sigurjón trúir ekki að bíóaðsókn hrynji 2015

Ásgeir Jónsson asgeir@dv.is
20:22 › 19. febrúar 2010
„Sumir vilja halda því fram að aðsókn að kvikmyndum muni hríðfalla í kringum 2015 en ég hef enga trú á því,“ segir Sigurjón.

„Sumir vilja halda því fram að aðsókn að kvikmyndum muni hríðfalla í kringum 2015 en ég hef enga trú á því,“ segir Sigurjón. Mynd Róbert Reynisson

„Þetta er alltaf hark,“ segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi aðspurður hvort bransinn sé eitthvað auðveldari núna en áður. Í helgarblaði DV er ítarlegt viðtal við Sigurjón um ferilinn og framtíðina en um helgina frumsýnir hann mynd sína Brothers hér á landi sem skartar Jake Gyllenhaal, Natalie Portman og Tobey Maguire í aðalhlutverkum.

Í viðtalinu er Sigurjón meðal annars spurður út í peningahliðina á kvikmyndabransanum. „Það er alltaf erfitt að fjármagna kvikmynd. Núna er fjármálakreppa í heiminum en það er stöðug fjármálakreppa í kvikmyndabransanum.“ Sigurjón segir hlutina ganga aðeins öðruvísi fyrir sig í Evrópu þar sem hægt sé að sækja um styrki og fjármagna myndir þannig. „En á Ameríkumarkaði er þetta bara einkaframtakið og það er alltaf mikið hark.“

Mikil þróun hefur orðið í afþreyingarheiminum frá því að Sigurjón byrjaði í kvikmyndabransanum. Umfang kvikmynda hefur aukist gríðarlega og um leið hefur framboð af afþreyingu aukist til muna með tilkomu netsins og tölvuleikja, svo eitthvað sé nefnt. „Vissulega er umfangið meira en þetta ferli að gera kvikmynd í gegnum Hollywood og með Hollywood-leikurum er í grunninn það sama.“

Aukin afþreying og ólöglegt niðurhal er eitt stærsta áhyggjuefni kvikmyndaiðnaðarins en Sigurjón blæs þó á allar dómsdagsspár. „Sumir vilja halda því fram að aðsókn að kvikmyndum muni hríðfalla í kringum 2015 en ég hef enga trú á því. Ég held að fólk muni alltaf vilja heyra sögur. Og þetta form, að segja sögur myndrænt, er nú orðið hundrað ára og er komið til að vera.“


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.