ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Skora á stjórnvöld að eyða óvissu vegna úreltra prentlaga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:42 › 19. febrúar 2010
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands.

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Mynd DV

Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á stjórnvöld að eyða réttaróvissu vegna úreltra prentlaga. Stjórnin vekur athygli á að Hæstiréttur Íslands hefur nýlega þyngt dóm yfir blaðamanni DV vegna ummæla sem höfð eru eftir viðmælanda í grein blaðsins.

Hæstiréttur þyngdi í gær dóm yfir Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni DV, og þarf hún að greiða Helgu Haraldsdóttur, eiginkonu Guðmundar í Byrginu, 400 þúsund krónur í bætur vegna ummæla sem höfð voru eftir Ólöfu Ósk um Helgu í DV þann 31. ágúst 2007. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Erlu til að greiða Helgu 100 þúsund krónur.

Í ályktun Blaðamannafélagsins kemur fram að fyrir liggi skýr vilji löggjafans í nýlegu frumvarpi um að samræma prentlög og útvarpslög að þessu leyti og tryggja að viðmælendur beri sinn hluta ábyrgðarinnar. Blaðamannafélagið hefur ásamt útgáfufélagi DV vísað slíku máli til Mannréttindadómstóls Evrópu. „Það hindrar tjáningarfrelsi og setur vinnubrögð blaðamanna í vandasömum málum í uppnám að hægt sé að gera blaðamennábyrga fyrir ummælum viðmælenda. Á því verður að ráða bót,“ segir í ályktun Blaðmannafélagsins.

Umrædd prentlög eru frá árinu 1956 og byggir Hæstiréttur dóm sinn á þeim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.