ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Segir að ummæli Sigmundar hljóti að kalla á rannsókn

15:01 › 19. febrúar 2010
Eiríkur Bergmann segir að ásakanir Sigmundar á hendur Sibert hljóti að kalla á sérstaka rannsókn.

Eiríkur Bergmann segir að ásakanir Sigmundar á hendur Sibert hljóti að kalla á sérstaka rannsókn.

„Svona ásakanir á hendur fræðimanni eru svo alvarlegar að þær hljóta að kalla á sérstaka rannsókn,“ segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur um ummæli Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, í garð Ann Sibert, fulltrúa í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Eiríkur vísar þarna til ummæla Sigmundar í garð Sibert en á dögunum lét hann þau orð falla að reka ætti Sibert úr peningastefnunefnd bankans vegna ummæla hennar um Icesave í evrópska hagfræðivefritinu VoxEu. Þar fullyrt Sibert að Íslendingar gætu vel staðið undir Icesave-skuldbindingunum enda benti flest til þess að uppgjör þeirra næmu fjórtán prósentum af landsframleiðslu, ekki fimmtíu eins og áður hafði verið talið.

Þetta fór illa í Sigmund og skoraði hann á forsætisráðherra að Sibert yrði vísað úr peningastefnunefnd Seðlabankans vegna ummælanna. Nú hefur Eiríkur Bergmann blandað sér í deiluna og segir á bloggsíðu sinni á vef Pressunnar að enginn fræðimaður, sem taki gagnrýnandann alvarlega, geti setið undir slíkum ávirðingum.

„Við Íslendingar þurfum vissulega að standa saman á erfiðum tímum og það er gott ef við fáum hjálp að utan. Ekki veitir af. En að mínu viti þurfum við líka að passa okkur á að halda í heiðri gamlar og góðar hefðir, eins og til að mynda þær er lúta að tjáningarfrelsinu og virðingu fyrir skoðunum annarra. Líkingar úr fótboltanum eru góðra gjalda verðar en þær eiga ekki alltaf við. Hugmyndir um að kaupa erlenda fræðimenn til að tala máli landsins eru eiginlega alveg út í hött. Það er ágætt að fá ráð frá slíku fólki en við getum ekki og eigum ekki að ráða málflutningi þeirra,“ segir Eiríkur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.