Í tilboðinu er kveðið á um fljótandi vexti og segir heimildarmaður Reuters að Íslendingar geti ekki hafnað tilboðinu.
Bretar og Hollendingar ætla að gera Íslendingum nýtt tilboð vegna Icesave-málsins. Kveður tilboðið á um það að vextir á lánunum verði breytilegir, en ekki fastir eins og áður var gert ráð fyrir. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir ónafngreindum heimildamanni.
Þetta þýðir að Íslendingar muni greiða alla upphæðina til baka en nánari útfærsla liggur hinsvegar ekki fyrir. Lýsir heimildamaður Reuters þessu sem tilboði sem „Íslendingar geti ekki hafnað.“ Heimildamaður innan breska fjármálaráðuneytisins staðfestir þetta einnig.
Að sögn Reuters byggir tilboðið á grunni Icesave-samningsins sem var undirritaður í október. Vaxtabyrði verði hinsvegar minni en samkvæmt upphaflega tilboðinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna