ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Myndband: Kólumbísk kona reis upp frá dauðum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:35 › 19. febrúar 2010
Noela Serna var síður en svo látin - hún var sprelllifandi.

Noela Serna var síður en svo látin - hún var sprelllifandi.

45 ára gömul kólumbísk kona, Noela Serna, skaut útfararstjóra skelk í bringu þegar hún reis upp frá dauðum – eða þannig. Konan hafði fengið hjartaáfall en komist undir læknishendur í tæka tíð. Eftir að hafa dvalið í nokkra stund á sjúkrahúsi var hún hinsvegar úrskurðuð látin þar sem læknar fundu engan púls.

Konan var því færð í líkhús sjúkrahússins og þaðan til útfararstjóra. Þar vaknaði konan hinsvegar upp – útfararstjóranum til mikillar skelfingar. Konan var flutt aftur undir læknishendur og er hún nú búin að ná sér að fullu.

Talið er að konan hafi þjáðst af svokölluðu Lazarus-heilkenni sem er tilvitnun í Biblíuna - en Jesús á að hafa lífgað mann að nafni Lazarus við eftir að hann var látinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.