Mörg slys. Að minnsta kosti fimm tilvik á sjö árum hafa orðið þar sem sjómenn hafa nærri kafnað vegna súrefnisskorts í lestum skipa. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Slysið sem varð um borð í skipinu Hoffelli í Fáskrúðsfirði þann 14. febrúar síðastliðinn, þegar tveir menn misstu meðvitund og voru hætt komnir þegar þeir voru að landa gulldeplu úr lest skipsins, er ekkert einsdæmi hér á landi.
Að minnsta kosti fjögur önnur sambærileg slys af völdum eiturgass hafa orðið í skipum hér á landi síðastliðin sjö ár, samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarnefnd sjóslysa sem heldur skrá um slík slys. Svo virðist sem súrefni klárist mjög fljótt ofan í slíkum lestum þegar innyfli uppsjávarfiska eru byrjuð að rotna.
Árið 2006 voru tveir skipverjar á Aðalsteini Jónssyni að þrífa eftir löndun í tanki skipsins þegar þeir fóru skyndilega að finna fyrir andnauð og slappleika. Í ljós kom að skipstjórinn hafði fyrir mistök dælt ósoni inn á meðan mennirnir voru í tanknum. Þeir þurftu aðhlynningu á sjúkrahúsi eftir atvikið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun