Davíð Oddsson er ritstjóri Morgunblaðsins og mbl.is. Hann fær á baukinn hjá Moggabloggaranum Birni Birgissyni.
Björn Birgisson, bloggari Morgunblaðsins, fordæmir félaga sína á Moggablogginu fyrir meiðyrði í garð stjórnvalda og bíður þess að einstaklingar eða flokkar stefni ,,helsekum afturhaldsbullunum".
,,Hvaða einstaklingur innan stjórnarflokkanna, flokkur þess vegna, ætli verði fyrstur til að stefna helsekum afturhaldsbullunum hér á Moggablogginu fyrir meiðyrði vegna endalausra ásakana um landráð við stjórn landsins?" spyr Björn í nýrri bloggfærslu.
Svo er að sjá sem hann vísi til Davíðs Oddssonar, núverandi ritstjóra Morgunblaðsins, þegar hann gefur þeim einkunn sem voru við stjórnvölinn á undan núverandi stjórnvöldum.
,,... Ég saka engan mann um landráð, en orðið aumingi, í fleirtölu, kemur mér oft í hug, þegar mér verður hugsað til vissra aðila, sem ekki eru, blessunarlega fyrir þjóðina, við stjórnvölinn nú. Í Þýslalandi sætu þessar öfgabullur innan rimla, eins og ég benti á í leðjuslag okkar Lofts Altice Þorsteinssonar á liðnu ári. Þjóðverjar brenndu sig illa á þriðja ríkinu og taka svona þjóðhættulega bullukolla og öfgamenn úr umferð. Hér á Moggablogginu eru þeir á vernduðum heimavelli ...," segir Björn og endar færslu sína á því að vísa til aðfarar hægri öfgamanna í garð ´Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar.
Sjá færslu Björns: http://urval3bjorn.blog.is/blog/urval3bjorn/entry/1020436/





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna