ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Missti 26 kíló á einum degi: Var með risablöðru á eggjastokkum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:00 › 19. febrúar 2010
Vickers missti 26 kíló á einum degi. Um var að ræða risastóra blöðru á eggjastokkum.

Vickers missti 26 kíló á einum degi. Um var að ræða risastóra blöðru á eggjastokkum.

Hin 27 ára gamla Marie Vickers frá Jórvíkurskíri á Englandi skildi ekkert í því hvers vegna hún byrjaði að þyngjast og þyngjast án þess að hafa breytt mataræði sínu til hins verra. Hún komst að hinu sanna fyrir skömmu þegar læknar fundu 26 kílóa blöðru á eggjastokkum hennar.

Í samtali við breska blaðið Daily Mail lýsir Vickers reynslu sinni og segir hún að fólk í kringum hana hafi margoft spurt hana hvort hún væri ólétt af tvíburum. Vickers hélt í fyrstu að um væri að ræða fitu og ákvað hún því að fara á stranga megrunarkúra til að freista þess að léttast. Ekkert gerðist og hélt Vickers áfram að þyngjast og þyngjast þó hún hafi sýnilega grennst á höndum, fótum og í andliti.

Það var svo í ágúst í fyrra sem Vickers ætlaði að fara með vinkonu sinni í sumarfrí til Dubai. Ekkert varð hinsvegar af ferðinni þar sem hún vaknaði með óbærilega kviðverki daginn áður. Fór hún til læknis þar sem hún var rannsökuð ítarlega. Komust læknar í kjölfarið að hinu sanna og gekkst Vickers undir aðgerð sama dag þar sem 26 kíló af vökva voru losuð úr blöðrunni.

Þó svo að Vickers hafi gengið undir þessa flóknu aðgerð, og þá staðreynd að um blöðru á eggjastokkum var að ræða, hafa læknar fullvissað hana um að hún geti enn eignast börn. „Ég trúði því ekki að 26 kíló hefðu farið á einu bretti – þetta reyndist vera hinn besti megrunarkúr. Ég vil bara benda öðrum konum á það að láta líta á sig ef minnsti grunur kemur upp um blöðru á eggjastokkum,“ segir hún.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.