Hæstiréttur. Maðurinn er laus úr gæsluvarðhaldi, meðal annars vegna þess að efnin eru ekki á skrá yfir ólögleg fíkniefni á Íslandi. Mynd DV
Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður á þrítugsaldri, sem grunaður er um smygl á tæpum fjórum kílóum af efni náskyldu amfetamíni, sæti áfram gæsulvarðhaldi. Var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrradag til níunda mars næstkomandi.
Það var þann fjórtánda desember síðastliðinn sem maðurinn var handtekinn við komuna til landsins frá Berlín í Þýskalandi. Fundust 3,7 kíló af ætluðu amfetamíni í fórum hans. Þegar Rannsóknarstofa Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði rannsakaði efnin kom í ljós að þau reyndust vera svokallað 4-flúoramfetamín sem er náskylt amfetamíni að gerð sem er á lista yfir ávana- og fíkniefni. 4-flúoramfetamín er hinsvegar ekki á þessum lista.
Í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur var litið svo á að efnin sem maðurinn flutti til landsins teldust meðal ávana- og fíkniefna. Voru þó ekki talin skilyrði til að beita gæsluvarðhaldi vegna þess. Hinsvegar taldi dómari í héraðsdómi að óhjákvæmilegt væri að maðurinn sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi þar sem hann hafi þegar játað að hafa ætlað að flytja inn, gegn greiðslu, um það bil eitt kíló af lyktarlausu kókaíni.
Hæstiréttur komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu í dag að þar sem efnin væru ekki á skrá yfir ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði þyki almannahagsmunir ekki krefjast þess að hann sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi né sú staðreynd að hann hafi játað að hafa ætlað að flytja inn ólögleg efni til landsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna