ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Jóhanna: Þjóðaratkvæðagreiðslan á tilsettum tíma

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:14 › 19. febrúar 2010
Jóhanna á ekki von á öðru en að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin fari fram þann sjötta mars næstkomandi.

Jóhanna á ekki von á öðru en að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin fari fram þann sjötta mars næstkomandi. Mynd DV

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á ekki von á öðru en að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin verði á tilsettum tíma, eða þann sjötta mars næstkomandi. Það muni ráðast þegar niðurstaðan úr viðræðunum við Breta og Hollendinga liggur fyrir.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Jóhanna sagði einnig að óljóst væri hvenær skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birtist en til stendur að birta hana um mánaðamótin – að óbreyttu. Jóhanna átti fund með Páli Hreinssyni, formanni rannsóknarnefndarinnar, í gærkvöldi og segir Jóhanna að Páll hafi ekki getað sagt til um hvenær skýrslan kæmi út.

Íslenska samninganefndin, sem verið hefur í Lundúnum síðan á mánudag, kom heim í gærkvöldi. Í fréttum RÚV kom fram að Bretar og Hollendingar hafi ekki getað fallist á upplegg Íslands í viðræðunum og er viðbragða að vænta frá Bretlandi á morgun.

Fréttastofa Reuters greindi frá því í dag að Hollendingar og Bretar ætli að senda nýtt tilboð til Íslands á morgun. Það feli meðal annars í sér að vextirnir af Icesave-skuldbindingunum verði breytilegir en ekki fastir eins og gert hafði verið ráð fyrir. Sagði heimildamaður Reuters að tilboðið væri of gott til að hafna því fyrir Íslendinga.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.