Ólöglegur innflytjandi í Bretlandi, sem myrti sex vikna gamla dóttur sína sem á sinni stuttu ævi þurfti að sæta ofbeldi nánast frá fyrsta degi, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. Olusola Akinrele þarf að sitja inni í að minnsta kosti 16 ár fyrir morðið á heimili þeirra í Whittlesey í Cambridgeshire í desember 2006.
Málið minnir óþægilega mikið á morðið á Baby P í Bretlandi sem setti óhug að heimsbyggðinni.
Dóttirin, sem hét Leeya, lést af alvarlegum áverkum á heila tólf dögum eftir að hún fannst nær líflaus á heimili sínu.
Viðkvæmir eru varaðir við þeim lýsingum sem hér fylgja.
Þremur vikum áður en hún lést hafði hún hlotið 22 brotin rifbein, brotna höfuðkúpu og brotinn fótlegg kom fram í réttarhöldum yfir Akinrele í Old Bailey-réttarsalnum í London. Þá var hún einnig með bitför á nefinu og á báðum handleggjum. Áverkarnir báru þess merki að Leeya hafi verið hrist á ofbeldisfullan hátt, henni slegið utan í eitthvað hart, miklu afli beitt á fótlegg hennar og hún loks bitin í þremur mismunandi árásum.
Vítiskvalir nýfæddrar stúlku- siðblindur faðir
Dómarinn í málinu, Philip Clegg, sagði við dómsuppkvaðningu að þegar litla telpan hafi ekki verið sofandi hafi hún þurft að líða vítiskvalir.
„Þú leist einungis á fæðingu hennar sem eitthvað sem myndi bjarga þér frá því að vera sendur úr landi,“ sagði Clegg er hann ávarpaði morðingjann.
Geðrannsókn á Akinrele leiddi í ljós að hann væri siðblindur og stjórnsamur einstaklingur.
Kelly Inman, móðir stúlkunnar játaði sig seka um að hafa ekki verndað dóttur sína en var sýknuð af ákæru um morð. Hún fékk fimm ára fangelsisdóm fyrir aðild sína og annað ótengt fjársvikamál. Það var hún sem hringdi á neyðarlínuna eftir síðustu barsmíðar Akinrele á stúlkunni áður en hún lést.
Akinrele var sakfelldur af Ipswich Crown-dómstólnum og verður sendur úr landi um leið og hann hefur setið af sér að minnsta kosti 16 ára fangelsisdóm. Hann er ólöglegur innflytjandi frá Nígeríu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung