Bandaríska borgin Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi á dögunum að vera valin ömurlegasta borg Bandaríkjanna. Það er viðskiptatímaritið Forbes sem stendur fyrir valinu en 433 þúsund manns búa í borginni.
Ástæðan fyrir því að Cleveland skoraði jafn hátt og raun ber vitni er sú að þar er atvinnuleysi með því hæsta sem gerist í Bandaríkjunum, veðurfar þykir óhagsstætt, skattar eru tiltölulega háir, stjórnkerfið er spillt og glæpatíðni há.
Í öðru sæti listans er borgin Stockton í Kaliforníu en þar þykir glæpatíðni afar há sem og atvinnuleysi. Stockton var í fyrsta sæti þegar könnunin var gerð á síðasta ári. Memphis varð í þriðja sæti listans og er þar spilltu stjórnkerfi helst kennt um. Borgirnar Detroit og Flint í Michigan urðu svo í fjórða og fimmta sæti en þar var áður blómlegur blómaiðnaður. Síðan kreppan skall á hefur eymdin og volæðið aukist til mikilla muna.
Stærsta borg Bandaríkjanna, New York, varð í sextánda sæti.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung