ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Bréfið í Kópavogi: Sent á lokaðan hóp

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
20:50 › 19. febrúar 2010
Hópurinn sem um ræðir. Bréfið var að sögn Óla Þórs sent á 59 manna lokaðan Facebook hóp; aðstandendur KFK.

Hópurinn sem um ræðir. Bréfið var að sögn Óla Þórs sent á 59 manna lokaðan Facebook hóp; aðstandendur KFK. www.facebook.com

„Ég sendi út orðsendingu á 59 manna hóp á Facebook en það hefur verið túlkað eins og ég hafi sent út bréf á vegum HK. Það er ekki satt og fyrir neðan allar hellur að gera skoðun mína að fréttaefni,“ segir Óli Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri KFK, Knattspyrnufélags Kópavogs.

Eins og fram hefur komið í fréttum í dag og í gær hefur bréf, sem Óli Þór skrifaði, gengið manna á milli í Kópavogi. Í bréfinu segir meðal annars að Gunnar hafi opinberað þá skoðun sína að hann ætli ekki að veita HK aðgang að íþróttahúsinu Kórnum í Kópavogi. Þannig stuðli hann að því að þjónusta HK við börn og unglinga í fari áfram fram á þremur stöðum. Það sé óásættanlegt. Því hvetur Óli Þór viðtakendur til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og kjósa aðra fulltrúa en Gunnar í prófkjöri sem framundan er.

Gunnar I. Birgisson gagnrýndi bréfið í fjölmiðlum í dag og sagði meðal annars að hans fólk notaði ekki svona aðferðir í prófkjörsbarátunni.

Óla Þór, sem er fæddur og uppalinn í Kópavogi, finnst bagalegt að nafn HK hafi verið dregið inn í umræðu sem var send út á lokaðri Facebook síðu. Fjölmiðlaumræðan sem upp spratt í kjölfarið sé komin út í öfgar enda hafi bréfið einungis verið ætlað þeim sem standa að nýstofnuðu félagi KFK. „Ég hef rétt á mínum skoðunum og má hvetja hvern sem er til að kjósa hvern sem er. Ég hef ávallt haft áhuga á íþróttamálum og þau skipta mig miklu máli. Þó svo að Gunnar I. Birgisson hafi gert margt gott fyrir íþróttafólkið í Kópavogi þá hefur það ekkert með mína skoðun að gera. Ég óska Gunnari góðs gengis í prófkjörinu en hann fær ekki mitt atkvæði,“ segir Óli Þór.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.