Ástin fær fólk til að gera ótrúlegustu hluti. Þjóðverjinn í frétt Spiegel braust inn í fangelsi til að hitta kærustuna sína. Myndin hér að ofan tengist þó efni fréttarinnar ekki með neinum hætti. Mynd Photos
Ástin getur fengið fólk til að gera ótrúlegustu hluti. Vefútgáfa þýska blaðsins Spiegel segir frá 33 ára gömlum Þjóðverja sem braust inn í kvennafangelsi í borginni Bielefeld, kvöld eftir kvöld, til að gamna sér með kærustunni sinni.
Upp komst um málið í nóvember á síðasta ári en kærasta mannsins var að afplána dóm vegna fíkniefnabrota. Eftir að lögregla lauk rannsókn málsins var málið sent til saksóknara sem nú hefur gefið út ákæru á hendur manninum. Mun dómari ákveða örlög mannsins í mars.
Aðrir fangar í kvennafangelsinu höfðu kvartað undan hávaða úr klefa konunnar og vissu sem var að ekki var allt með felldu – að minnsta kosti bentu hljóðin til þess. Fangelsisyfirvöld brugðu því á það ráð að koma fyrir eftirlitsmyndavél fyrir framan klefa konunnar og náðist maðurinn kvöld eitt í nóvember. „Ég elska hana – við erum trúlofuð,“ hrópaði maðurinn að lögreglu þegar hann var leiddur burt í handjárnum.
Lögmaður mannsins finnst ákæran tilefnislaus og þegar málið var tekið fyrir á dögunum fyrir dómstólum lagði hann til málið yrði látið niður falla. „Getum við ekki bara hlegið að þessu í þetta eina skipti og gleymt þessum réttarhöldum?,“spurði lögmaður mannsins.
Dómaranum var hinsvegar ekki skemmt og ákvað að dómur skuli falla í næsta mánuði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung