Knútur Einarsson segir ömurlegt að dómurinn sem hann hefur á bakinu þurfi að bitna á eiginkonunni Dayönu Alves. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Dayana Alves frá Brasilíu hefur búið ásamt eiginmanni sínum, Knúti Einarssyni, á Íslandi í tvö ár. Hún hefur ekki fengið dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun sem ætlar að vísa henni úr landi því að Knútur er á sakaskrá. Hjónin hafa kært úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur.
„Mér líður eins og glæpamanni. Ég get ekki farið og ég get ekki unnið. Ef ég færi heim til mín að heimsækja fjölskylduna mína kæmist ég ekki aftur hingað,“ segir hin brasilíska Dayana Alves sem Útlendingastofnun hefur ákveðið að vísa úr landi. Hún er gift íslenskum manni, Knúti Einarssyni, og býr með honum í íbúð í Kópavoginum.
Umsókn Dayönu um dvalarleyfi var hafnað af yfirvöldum vegna þess að eiginmaður hennar er á sakaskrá vegna brots sem hann framdi fyrir nær fimm árum síðan. Dayana er hins vegar sjálf með hreinan skjöld og allt sem til þarf fyrir dvalarleyfi.
Dayana og Knútur hafa kært úrskurð Útlendingastofnunar til Héraðsdóms Reykjavíkur. Þau telja óréttlátt að gamall dómur Knúts hafi áhrif á mál Dayönu. Tvö ár eru liðin síðan umsóknarferli Dayönu hjá stofnuninni hófst og segja hjónin að lokaniðurstaða yfirvalda hafi verið mikið reiðarslag. Knútur segist ekki af baki dottinn og ætlar að berjast fyrir að hann og Dayana fái að vera saman. „Ég ætla að berjast alveg fram í rauðan dauðann. Ef allt fer á versta veg, sem ég trúi ekki að gerist, fer ég bara með henni til Brasilíu,“ segir Knútur.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Laus eftir 12 ár í fangelsi
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
