Tiger Woods, besti kylfingur heims, var auðmjúkur og fullur iðrunar á blaðamannafundi sem hann hélt fyrir útvalda blaðamenn og kunningja í dag. Er þetta í fyrsta skipti sem Woods tjáir sig opinberlega eftir að framhjáhald hans með fjölda kvenna komst upp.
„Ég er mjög miður mín yfir gjörðum mínum sem voru óábyrgar og eigingjarnar. Það hafa allir góðar og gildar afsakanir fyrir því að gangrýna mig. Ég var ótrúr. Ég hélt framhjá og ég er sá eini sem hægt er að sakast við,“ sagði Woods.
Tiger sagði svo á fundinum að það væri undir sér komið að hefja nýtt líf sem myndi einkennast af heiðarleika. Það væri erfitt að viðurkenna það að hann þyrfti á hjálp að halda. Þá bætti hann við að hann og eiginkona hans, Elin Nordegren, væru komin á byrjunarreit og hann þyrfti að byggja upp traust aftur.
„Ég og Elin höfum þegar rætt afleiðingar og áhrif gjörða minna á sambandið. Hún benti réttilega á að ég geti ekki afsakað mig með orðum. Afsökunin myndi koma fram í framkomu minni og hegðun gagnvart henni,“ sagði Woods auðmjúkur. „Ég særði eiginkonu mína, börnin mín, fjölskyldu eiginkonu minnar, vini mína og alla stuðningsmenn mína.“
Woods neitaði því að Nordegren hafi ráðist á hann kvöldið örlagaríka þegar hann missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún endaði á brunahana. Birtu fjölmargir slúðurmiðlar vestanhafs fréttir þess efnis að Nordegren hafi veitt honum líkamlega áverka þegar hún komst að framhjáhaldi eiginmanns síns.
Margir biðu fullir eftirvæntingar um áform Woods á golfvellinum en hann gaf lítið út um það – útilokaði þó ekki að snúa aftur í golfmót á árinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung