Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að því að Hagar hefðu með þátttöku Bónus í svonefndu „mjólkurverðstríði“ brotið gegn lögum um undirverðlagningu. Mynd DV
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað að taka til greina kröfu Haga, um að ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um 315 milljóna króna stjórnvaldssekt, verði felld úr gildi. Ætla Hagar hf. Að áfrýja dómi héraðsdóms til Hæstaréttar.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að því þann fjórða mars á síðasta ári að Hagar væru í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir dagvöru í matvöruverslunum og hefði með þátttöku Bónus í svonefndu „mjólkurstríði“ lágvöruverslana, sem Krónan hóf á árinu 2005, brotið gegn lögum samkeppnislaga um undirverðlagningu.
Í tilkynningu frá Högum kemur fram að dómnum verði áfrýjað, meðal annars af þeim ástæðum, að ekki liggi fyrir mörg dómafordæmi er varða undirverðlagningu. Samkeppniseftirlitið hafi ekki gefið út almennar leiðbeiningar varðandi þetta efni. Þá sé ekki vikið beinum orðum að undirverðlagningu í elleftu grein samkeppnislaga, um atriði sem falla undir misnotkun á markaðsráðandi stöðu heldur byggt lögskýringargögnum og fræðisetningum.
Þegar af þeirri ástæðu telja Hagar hf. slíka réttaróvissu ríkja um þau atriði sem fjallað er um dómi héraðsdóms að nauðsynlegt sé að hann sæti endurskoðun af hálfu æðri dóms þar sem hún hafi almennt gildi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna