Maðurinn sem flaug lítilli eins hreyfils vél inn í höfuðstöðvar skattayfirvalda í Austin í Texas í dag var reiður út í skattinn. Tæplega 200 manns vinna í byggingunni en maðurinn, hinn 53 ára gamli Joseph Andrew Stack, var sá eini sem lést þegar vélin lenti á húsinu.
Að því er fram kemur á vef Fox News rannsakar lögreglan nú bréf sem Joseph skrifaði á heimasíðu sína. Lýsti hann þar óánægju með vinnubrögð skattayfirvalda og sagði að ofbeldi væri eina leiðin til að fá þá til að hlusta. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað maðurinn var ósáttur við.
Vél mannsins, sem var hugbúnaðarverkfræðingur að mennt, lenti á einni af neðri hæðum hússins og var höggið það mikið að starfsfólk á efri hæðum hússins féll í gólfið. Vélin hafði verið um tuttugu mínútur á flugi þegar hún lenti á byggingunni. Áður en hann lagði af stað í örlagaferðina kveikti hann í heimili sínu, að því er fram kemur á vef Fox News.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu