Hollendingar og Bretar taka dræmt í hugmyndir Íslendinga um lausn Icesave-málsins, samkvæmt heimildum DV. Forystumenn stjórnmálaflokkanna komu saman til fundar í stjórnarráðinu í kvöld en Icesave-samninganefndin sem verið hefur í Lundúnum að undanförnu snýr heim í fyrramálið.
Samkvæmt heimildum DV ætti lausn málsins að skýrast um helgina en í síðasta lagi á mánudag. Herma heimildir DV að ekki ríki sérlega mikil bjartsýni innan ríkisstjórnarinnar að málið komist á skrið á næstunni og eru Hollendingar sagðir vera sérstaklega erfiðir viðureignar.
Í dag var greint frá því í vefútgáfu breska blaðsins Financial Times að Alistair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé reiðubúinn að skoða þann möguleika að lækka vexti á Icesave-láninu. Hvorki forsætis- né fjármálaráðuneytið vildu hinsvegar tjá sig um yfirstandandi viðræður íslensku samninganefndarinnar við bresk og hollensk stjórnvöld, þegar eftir því var leitað í dag.
Samninganefndin er nú á heimleið frá Lundúnum, sem fyrr segir, og ræðir við forystumenn stjórnmálaflokkanna í fyrramálið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun