ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Stundum bjargar það lífi manns að brenna peninga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:58 › 18. febrúar 2010
Má bjóða þér eld? Podolsky þakkar síðustu evrunum sínum og kveikjaranum í vasanum fyrir lífbjörgina.

Má bjóða þér eld? Podolsky þakkar síðustu evrunum sínum og kveikjaranum í vasanum fyrir lífbjörgina.

Þýskur snjóbrettakappi sem varð strandaglópur í austurrísku Ölpunum í sex klukkustundir áður en honum var bjargað, kveikti í peningunum sínum til að vekja á sér athygli. Það kann að hafa bjargað honum.

Dominik Poldosky frá Munchen í Þýskalandi festist í skíðalyftu sem slökkt var á þegar rökkva tók í Hochzillertal í Austurríki.

Poldosky var nú hætt að lítast á blikuna þegar líða fór á kvöldið og hitastigið var fallið 18 gráður undir frostmark. Hann ákvað þá að bregða á það ráð að brenna pappírs og annað innihald peningaveskisins sem hann var með á sér.

Hann byrjaði á kvittunum og nafnspjöldum í veskinu og loksins þegar hann var byrjaður að brenna síðustu evrurnar sínar sá viðhaldsmaður skíðalyftunnar hann.

Podolsky segir að hann hafi verið á leiðinni niður brekkunna þegar slökkt var á henni og hann var staddur í um tíu metra hæð. Hann hafði gleymt farsímanum og hróp hans og köll skiluðu engu.

„Ég hugsaði um að stökkva niður en þá hefði ég líklega brotið báða fætur og frosið í hel.“

Hann var að því kominn að ofkælast þegar hann komst í hendur lækna á sjúkrahúsi þar sem hann jafnaði sig fljótt. Hann tók síðan lest heim til sín. Podolsky íhugar að höfða mál gegn fyrirtækinu sem sér um skíðalyftuna. Talsmaður fyrirtækisins segir hins vegar að lyfturnar séu ekki hugsaðar fyrir fólk á niðurleið og Podolsky hafi augljóslega hunsað viðvörunarskilti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.