Eins og greint var frá í morgun birtir Financial Times grein á vef sínum í dag þar sem segir að Alistair Darling fjármálaráðherra Bretlands sé reiðubúinn að skoða þann möguleika að lækka vexti á Icesave-láninu. Hvorki forsætis- né fjármálaráðuneytið vill tjá sig um yfirstandandi viðræður íslensku samninganefndarinnar við bresk og hollensk stjórnvöld.
DV leitaði viðbragði úr ráðuneytunum við frétt Financial Times og hvort breskir ráðamenn hefðu viðrað einhverjar þær hugmyndir sem tilgreindar eru í grein blaðsins við íslensk stjórnvöld.
Fengust þau svör að sú ákvörðun hefði verið tekin að íslensk stjórnvöld myndu ekki tjá sig efnislega um viðræðurnar, né hvað kemur fram á fundum, á meðan þær standa yfir. Samræður eru í trúnaði.
Ef marka má grein Financial Times virðist heldur jákvæðari tónn vera kominn í bresk stjórnvöld, en Alistair Darling hefur áður lýst því yfir að Icesave-samkomulagið væri sanngjarnt.
Sjá einnig:





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli