ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Stal tólf hundruð skópörum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:35 › 18. febrúar 2010
Lögreglan leitar nú að fórnarlömbum Parks en skópörin má nálgast í höfuðstöðvum lögreglunnar í Seoul.

Lögreglan leitar nú að fórnarlömbum Parks en skópörin má nálgast í höfuðstöðvum lögreglunnar í Seoul.

Lögreglan í Seoul hefur loksins náð að góma stórtækan þjóf sem hefur gert syrgjendum lífið leitt í borginni undanfarin misseri. Maðurinn, sem heitir Park, stundaði það að fara í jarðarfarir þar sem hann stal skóm syrgjenda.

Eftir að hafa gert fólki lífið leitt undanfarna mánuði kom loksins að því Park var gómaður. Hann mætti í sínu fínasta pússi í jarðarför í borginni en í Suður Kóreu er það siður að fólk fer úr skónum í jarðarförum.
Park fór úr sínum skóm, sem voru gamlir og illa farnir, en þegar kom að því að yfirgefa jarðarförina sást til hans fara í skó sem voru ekki í hans eigu. Í kjölfarið var hringt á lögreglu og Park handtekinn.

Lögreglu brá svo heldur betur í brún þegar gerð var húsleit á heimili hans því þar fundust hvorki fleiri né færri en tólf hundruð skópör. Virðist Park hafa stundað það að fara í jarðarfarir hjá fólki sem hann þekkti ekki, skilið sína skó eftir en stolið þeim dýrustu og flottustu sem hann fann.

Park viðurkenndi þjófnaðina og sagði hann við yfirheyrslur hjá lögreglu að hann hefði stolið skónum til að selja þá aftur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.