ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Stakk kærustuna til bana vegna myndar á Facebook

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:04 › 18. febrúar 2010
Camille var fórnarlömb afbrýðisemi.

Camille var fórnarlömb afbrýðisemi.

Innan við tveimur vikum eftir að hinn 25 ára gamli Paul Bristol sá myndir af kærustunni sinni með öðrum manni á Facebook, keypti hann sér flugferð frá Trinidad og Tobago til Bretlands. Það hefði hann betur látið ógert því hann á von á því að sitja bak við lás og slá næstu árin.

Bristol, sem er frá Trinidad og Tobago, átti erfitt með að sætta sig við það að kærastan hans, Camille Mathurasingh, væri farin að hitta annan mann. Þegar Bristol kom til Englands fór hann umsifalaust heim til hennar og stakk hana yfir tuttugu sinnum með þeim afleiðingum að Camille lést.

Málið var tekið fyrir hjá breskum dómstólum á dögunum en Bristol hefur játað á sig manndráp. Camille starfaði fyrir PricewaterhouseCoopers í Lundúnum þegar hún var myrt en hún hafði flutt frá Trinidad fyrir um tveimur árum. Þá voru þau Bristol og Camille enn í sambandi og ákváðu þau að halda því áfram, þó hún væri komin til Englands en hann enn í Trinidad.

Svo fór að Camille fór að hafa efasemdir um framtíð sambands hennar og Bristol og eftir eins árs fjarbúð hóf hún að hitta annan mann. Camille lét Bristol hinsvegar ekki vita af nýja elskhuganum þó sambandið stæði á brauðfótum og var það ekki fyrr en hann sá mynd af henni með nýja elskhuganum á Facebook að hann komst að hinu sanna.

Bristol ákvað því að fara til Bretlands til að reyna að vinna hjarta Camille. Viðbrögðin sem Bristol fékk voru hinsvegar þau að hún væri hamingjusöm með nýja kærastanum sínum og samband hennar og Bristols væri lokið. Varð það til þess að Bristol fylltist bræði með fyrrgreindum afleiðingum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.