ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Símanúmer selt á 850.000 sem Fjölskylduhjálp fær

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:33 › 18. febrúar 2010
Matthías Imsland formaður Fjölskylduhjálparinnar tekur við gjöfinni úr hendi Guðrúnar Einarsdóttur markaðsstjóra Nova.

Matthías Imsland formaður Fjölskylduhjálparinnar tekur við gjöfinni úr hendi Guðrúnar Einarsdóttur markaðsstjóra Nova.

Fjölskylduhjálp Íslands var í dag afhentar 850 þúsund krónur frá símafyrirtækinu Nova. Peningana fékk Nova fyrir uppboð á heimasíðu sinni á símanúmerinu 777-7777, sem auðveldlega er hægt að kalla flottasta símanúmer í heimi.

Fjöldi tilboða barst í númerið sem var slegið einstakling sem greiddi hvorki meira né minna en 850 þúsund krónur fyrir og rann allt andvirðið beint til Fjölskylduhjálparinnar.

Matthías Imsland, formaður Fjölskylduhjálparinnar, var að vonum þakklátur þegar hann veitti peningunum viðtöku.

„Þetta á eftir að koma að góðum notum hjá okkur,“ segir Matthías.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.