Lögregluþjónn segist hafa séð fljúgandi furðuhlut á sveimi yfir heimavelli enska stórliðsins Chelsea í mars árið 1999. Þetta er meðal þess sem fram kemur í leynigögnum sem breska varnarmálaráðuneytið hefur gert opinber.
Í gögnunum kennir ýmissa grasa enda er um sex þúsund blaðsíður að ræða. Þar kemur meðal annars fram að lögregluþjónn sem var á vakt kvöld eitt sá fljúgandi furðuhlut yfir heimavelli liðsins sem er í Lundúnum en engar sönnur er hægt að færa á frásögn lögregluþjónsins þar sem hann var sá eini sem gaf sig fram.
Fjölmörg vitni segjast hinsvegar hafa séð fljúgandi furðuhlut yfir heimili þáverandi innanríkisráðherra Bretlands, Michael Howard, árið 1997, skömmu áður en bresku þingkosningarnar fóru fram. Bar vitnum saman um að hluturinn hafi verið þríhyrningslaga með stórum ljóskastara og hann hafi verið í nokkur hundruð metra hæð yfir heimili hans.
Í gögnunum er einnig að finna frásögn tveggja flugmanna sem sögðust hafa verið hætt komnir þegar fljúgandi furðuhlutur nálgaðist vél þeirra á leifturhraða þann sjötta janúar árið 1995. Voru flugmennirnir að koma frá Mílanó en atvikið átti sér stað skömmu áður en vélin lenti í Manchester.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung