„Ég kann betur við mig fyrir aftan vélarnar. Það er fullt af fólki sérhæft í því að vera fyrir framan vélarnar og er frábærir leikarar. Ég kann líka betur á allt fyrir aftan vélarnar,“ segir Ragnar Bragason leikstjóri en honum bregður fyrir í nýjum myndböndum sem eru á netinu.
Myndböndin fjalla annars vegar um hvort Ríkissjónvarpið sé að sinna sínu menningarlega hlutverki og einnig er reynt að slá á ranghugmyndir um íslenska kvikmyndagerð. Þar kemur Ragnar aðeins við sögu en hann gerði alls sjö þætti, með Næturvaktargenginu, um þessar ranghugmyndir. Leikur þar sjálfan sig koma á bensínstöðina um kvöld og tekur bensín. Sýnir sannkallaðan stjörnuleik.
„Þessar tvær seríur, ef við getum kallað þetta það, birtast á netinu - eitt myndband á hverjum degi. Ég gerði sjö atriði og hin serían, sem Grímur Hákonarson gerði, er sex atriði. Þetta verður alls í tvær vikur - eitt myndband á dag.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar